Fyrsta stikla sjónvarpsþáttanna Ófærð hefur verið opinberuð. Þættirnir, sem eru tíu talsins, verða frumsýndir á RÚV 27. desember næstkomandi.
Rvk. Studios framleiðir þættina í samvinnu við RÚV, ZDF og DR. Leikstjórar eru Baltasar Kormákur, Óskar Axelsson, Baldvin Z og Börkur Sigþórsson. Handritshöfundar eru Sigurjón Kjartansson, Clive Bradley, Ólafur Egilsson og Jóhann Ævar Grímsson. Með helstu hlutverk fara Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Bjarne Henriksen.