ITV sjónvarpsstöðin í Bretlandi hefur sent frá sér tilkynningu um ákveðið hafi verið að ráðast í 13 þátta röð byggða á Bjólfskviðu. Gísli Örn Garðarsson er meðal leikara í þáttunum.
Kieran Bew (Da Vinci’s Demons, The Bletchley Circle) leikur aðalhlutverkið en í öðrum helstu hlutverkum eru bandaríski leikarinn William Hurt (The Big Chill) og breska leikkonan Joanne Whalley (The Borgias).
Upptökur hefjast í norð-austur hluta Bretlands síðar í mánuðinum.
Sjá nánar hér: Beowolf cast announcement | presscentre.