Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum situr í sjöunda sæti aðsóknarlistans eftir sjöundu sýningarhelgi. Myndina sáu 471 manns í liðinni viku, þar af 218 um helgina. Myndin hefur fengið alls 32.106 gesti. Allar líkur eru á að hún verði önnur vinsælasta myndin í seríunni, enda vantar hana aðeins rúmlega eitt hundrað manns til að komast yfir Algjöran Sveppa og leitina að Villa (2009) sem er sú næst mest sótta hingað til.
AÐSÓKN VIKUNA 8.-14. des. 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
7 | Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum | 471 | 32.106 |