Ása Helga Hjörleifsdóttir leitar nú að ungri leikkonu til að fara með eitt af aðalhlutverkum stuttmyndarinnar Vetur, nótt sem tekin verður upp í janúar. Prufur verða haldnar 16., 17., og 18. desember í húsnæði Kvikmyndaskóla Íslands á Grensásvegi 1. Áhugasömum er bent á að hafa samband við casting.vetur@gmail.com
Áætlaðar tökur eru 3 dagar á bilinu 12.-16. janúar 2015 í Reykjavík. Ása Helga segir þetta nokkuð myrka en ljúfsára og á köflum fyndna sögu sem gerist öll á einni nóttu í Reykjavík, í lífi Maríönnu (33) og Védísar dóttur hennar (9 ára), þegar Védis flækist inn í dramtískt augnablik í lífi móður sinnar án þess í raun að skilja það.
Vintage Pictures (Hlín Jóhannesdóttir og Birgitta Björnsdóttir) framleiða myndina.
Maríanna verður leikin af Laufey Elíasdóttur, en leitað er að mótleikkonu hennar, stelpu á aldrinum 8-11 ára. Védísi er lýst sem klárri – á köflum langt á undan mömmu sinni, sem er ekki alltaf mjög raunsæ. „Védís er því kannski nokkuð melankólísk, en ekki síður glettin.“
Ása Helga lauk MFA prófi í kvikmyndagerð frá Columbia háskóla í New York vorið 2012. Hún hefur skrifað, leikstýrt og klippt fjölda stuttmynda og ber þá helst að nefna útskriftarmynd hennar Ástarsögu, sem sýnd hefur verið á yfir 40 hátíðum, unnið til fjölda verðlauna og komist í lokaúrtak fyrir Óskarverðlaunin 2013 í flokki útskriftarmynda úr kvikmyndaskólum.
Ása vinnur nú að sinni fyrstu mynd í fullri lengd, en það er hennar aðlögun á Svaninum eftir Guðberg Bergsson. Handrit Ásu að Svaninum hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar á ýmsum vígstöðum, og hefur fengið vilyrði um framleiðslustyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands fyrir árið 2016.