SÍK hefur sent frá sér tölur um veltu í kvikmyndabransanum fyrstu átta mánuði ársins. Byggt er á gögnum Hagstofunnar, sem sýna að veltan það sem af er þessu ári er þegar orðin meiri en allt árið 2011 og stefnir í að verða hærri en nokkru sinni fyrr þegar árið er úti.
Þetta eru vissulega ágæt tíðindi en um leið er ekki öll sagan sögð.
Tölur frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu vegna 20% endurgreiðslunnar sýna glögglega að erlend verkefni eru stærsti hluti veltunnar og innlend framleiðsla er að dragast verulega saman. Hér að neðan er graf sem sýnir heildargreiðslur vegna endurgreiðslunnar frá upphafi og með fyrstu átta mánuðum yfirstandandi árs. Þær tala sínu máli, en þó má benda á að erlendu verkefnin eru um 83% af heildarveltunni það sem af er árinu.
Hafa ber í huga að endurgreiðslur falla stundum til vegna verkefna ársins á undan og stundum enn eldri verkefna. Þá skal og aftur minnt á að endanlegar tölur yfirstandandi árs liggja eðli málsins samkvæmt ekki fyrir.
Undir grafinu má svo skoða sömu gögn í tölum.
Innlend | Erlend | Samtals | |
---|---|---|---|
2001 | 0 | 13 | 13 |
2002 | 26 | 56 | 82 |
2003 | 16 | 9 | 26 |
2004 | 57 | 38 | 94 |
2005 | 305 | 2 | 307 |
2006 | 43 | 122 | 165 |
2007 | 184 | 3 | 187 |
2008 | 87 | 2 | 90 |
2009 | 219 | 0 | 219 |
2010 | 169 | 21 | 190 |
2011 | 295 | 19 | 315 |
2012 | 331 | 262 | 593 |
2013 | 477 | 482 | 959 |
2014* | 159 | 755 | 914 |