Vetrartökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hefur verið frestað fram í janúar vegna snjóleysis í Bárðardal. Síðari hluti af tökum hefur staðið yfir nú í nóvember en síðustu tökudagarnir hafa nú verið færðir fram í janúar vegna einmuna veðurblíðu á Norðurlandi.
Í kvikmyndinni fara þeir Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson með hlutverk tveggja bræðra sem stunda búskap á samliggjandi jörðum en hafa ekki talast við í fjörtíu ár.
Að sögn framleiðenda krefst framvinda sögunnar þess að í Bárðardalnum sé alvöru vetur og snjór yfir öllu meðan á tökum stendur líkt og algengt er á þessum árstíma. Vetrartökur hófust þann 10. nóvember í frosthörkum við alhvíta jörð. Nú blasa hins vegar við græn tún og fuglasöngur. Samkvæmt veðurspám er milt veður í kortunum fyrir norðan og lítil von á snjónum sem nauðsynlegur er svo tökur geti haldið áfram.
Þessi skortur á vetrarveðri veldur framleiðslunni töluverðu raski en tökur hafa hins vegar gengið að óskum hingað til og telja aðstandendur myndarinnar ólíklegt að tafirnar muni hafa áhrif á útgáfu myndarinnar, en ætlunin er að frumsýna hana næsta haust.