Afinn er áfram í öðru sætinu eftir þriðju sýningarhelgi. Alls hafa 9.995 manns séð myndina frá upphafi, þar af 1.371 um helgina og alls 3.815 síðastliðna viku.
París norðursins er nú í 12. sæti aðsóknarlistans eftir sex vikur í sýningum. Alls hafa 10.957 gestir séð myndina hingað til, en þar af komu 279 gestir um helgina og alls 557 í vikunni.
Vonarstræti er nú í 22. sæti á lista SMÁÍS eftir 22 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 261 manns s.l. viku, þar af 55 um síðustu helgi. Samtals hefur myndin fengið 47.753 gesti frá því sýningar hófust.
AÐSÓKN VIKUNA 6.-13. okt. 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
3 | Afinn | 3.815 | 9.995 |
6 | París norðursins | 557 | 10.957 |
22 | Vonarstræti | 261 | 47.753 |