Launagreiðslur vegna „Sumarbarna“ dragast

sumarborn-715x320Samkvæmt Kjarnanum hafa starfsmenn kvikmyndarinnar Sumarbörn ekki fengið laun sín greidd að fullu, en upptökur fóru fram s.l. sumar.

Í frétt Kjarnans segir m.a.:

„Til okkar hafa leitað félagsmenn, ellefu talsins, sem hafa ekki fengið greidd laun vegna vinnu við myndina og við erum að reyna að aðstoða þá eftir fremsta megni,“ segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Vinna við myndina Sumarbörn, sem fékk einn hæsta styrkinn úr Kvikmyndasjóði Íslands í fyrra, 90 milljónir króna, er nú í nokkurri óvissu þar sem starfsfólk hefur ekki fengið greidd laun að fullu fyrir vinnu sína. „Við lítum þetta mjög alvarlegum augum og auðvitað vonumst við eftir því að úr þessu verði leyst og starfsfólkið fái launin greidd sem það á inni sem allra fyrst.“ Lögfræðingar, fyrir hönd þeirra sem eiga laun inni, hafa sent framleiðendum myndarinnar bréf og krafist þess að launin verði greidd hið fyrsta.

Hrafnhildur segir málið líka viðkvæmt þar sem stór hópur barna hafi verið meðal leikara í myndinni og að þau hafi ekki fengið greidd laun eins og um hafi verið samið í upphafi. Ekki síst í ljósi þess skipti máli að framleiðandi myndarinnar, fyrirtækið Ljósband, standi við sitt.

Í forsvari fyrir Ljósband eru Anna María Karlsdóttir og Hrönn Kristinsdóttir, sem hafa mikla reynslu af kvikmyndagerð og framleiðslu.

Hrönn sagði í samtali við Kjarnann að henni þætti mjög leitt að ekki hefði tekist að greiða laun að fullu. Hún sagði ekki vera neinn skort á greiðsluvilja og að þau sem að framleiðslu myndarinnar stæðu ætluðu sér að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að standa í skilum við alla þá sem ættu inni laun vegna Sumarbarna, bæði starfsfólk og leikara. Vonir stæðu jafnvel til þess að hægt yrði að gera það fyrir næstu mánaðamót og að framleiðendurnir væru í samskiptum við foreldra þeirra barna sem ættu inni laun vegna myndarinnar. Allt yrði gert til þess að greiða fólki það sem það ætti inni vegna myndarinnar.

Sjá nánar hér: Kjarninn – Sumarbörn fá ekki borgað – lögfræðingar í málinu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR