Sýningar hefjast 26. september á kvikmyndinni Afinn með Sigurði Sigurjónssyni í aðalhlutverki. Bjarni Haukur Þórsson leikstýrir eftir eigin handriti sem aftur byggir á samnefndu leikriti hans.
Afinn er gaman-drama og segir frá Guðjóni sem lifað hefur öruggu lífi. Allt í einu blasir eftirlaunaaldurinn við honum. Erfiðleikar koma upp í hjónabandinu, hann þolir ekki tilvonandi tengdasoninn og svo framvegis. Í örvæntingu sinni í leit að lífsfyllingu og tilgangi liggur leið hans meðal annars til Spánar, í heimspekideild Háskóla Íslands og á Landspítalann.
Í öðru helstu hlutverkum eru Þorsteinn Bachmann, Sigrún Edda Björnsdóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi jr) Tinna Sverrisdóttir og Jón Gnarr Jónsson (jr).
Stiku myndarinnar má sjá hér að neðan.