Vonarstræti fer úr 6. í 8. sætið á aðsóknarlista SMÁÍS eftir 11 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 658 manns s.l. viku, þar af 218 um helgina. Samtals hefur myndin fengið 43.919 gesti frá því sýningar hófust.
AÐSÓKN VIKUNA 21.-27. JÚLÍ 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
11 | Vonarstræti | 658 | 43.919 |