Tökur á bíómyndinni Bakk í leikstjórn Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, hefjast í ágústbyrjun og standa fram í september. Myndin segir frá tveimur æskuvinum sem ákveða að bakka hringinn í kringum Ísland til styrktar langveikum börnum.
Gunnar Hansson, Víkingur Kristjánsson og Saga Garðarsdóttir fara með aðalhlutverk myndarinnar en í öðrum helstu hlutverkum eru Þorsteinn Gunnarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Hanna María Karlsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson.
Mystery framleiðir, tökumaður er Árni Filippusson.