Greining | „Vonarstræti“ klífur fimmta tugþúsundið

vonarstræti collageVonarstræti heldur áfram að klifra upp fimmta tugþúsundið. Myndin er nú í 6. sæti aðsóknarlista SMÁÍS eftir 9 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 1.377 manns s.l. viku, þar af 467 um helgina. Samtals hefur myndin fengið 42.328 gesti frá því sýningar hófust.

Hross í oss er einnig áfram í Bíó Paradís og er á 46. sýningarviku. Myndin er komin í alls 15.126 gesti.

AÐSÓKN VIKUNA 7.-13. JÚLÍ 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
9Vonarstræti1.37742.328
(Heimild: SMÁÍS)

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR