Heima er best, myndband Djúpavogshrepps og Afls starfsgreinafélags, þar sem lýst er sjónarmiðum heimamanna í „Vísismálinu“ svokallaða, hefur vakið gríðarlega athygli og umræður.
Myndbandið var unnið af kvikmyndagerðarmönnunum Sigurði Má Davíðssyni og Skúla Andréssyni sem báðir eru frá Djúpavogi. Þeir útskrifuðust úr Kvikmyndaskóla Íslands 2012 og hafa síðan rekið framleiðslufyrirtækið Arctic Project. Fyrirtækið hefur fengist við gerð stuttmynda, heimildamynda, auglýsinga og tónlistarmyndbanda.
Í stuttu spjalli við Klapptré sagði Sigurður Már hugmyndina hafa vaknað hjá stjórnendum Djúpavogshrepps í kjölfar fréttar þar sem Vísismönnum var þakkað fyrir að hjálpa starfsmönnum sínum á Djúpavogi með því að bjóða þeim vinnu í Grindavík. Oddvitinn hafi síðan haft samband við þá Skúla. „Okkur langaði að sýna að málið væri ekki alveg svona einfalt,“ segir Sigurður Már.
Í kynningu á myndbandinu segir:
Myndina má sjá hér að neðan: