Sjónvarpsmyndin „Ó blessuð vertu sumarsól“ sýnd í tveimur hlutum á RÚV um páskana

Magnea Björk Valdimarsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leika heldur ókræsileg systkin í sjónvarpsmyndinni Ó blessuð vertu sumarsól.
Magnea Björk Valdimarsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leika heldur ókræsileg systkin í sjónvarpsmyndinni Ó blessuð vertu sumarsól.

Ó blessuð vertu sumarsól nefnist ný íslensk sjónvarpsmynd í tveimur hlutum sem RÚV sýnir um páskana. Þar segir af trillukarli og ekkli á Austfjörðum sem kemur heim úr langferð með óvæntar fréttir, uppkomnum börnum sínum til mikillar gremju.

Þetta er tregablandin kómedía með Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Theódóri Júlíussyni, Vigni Rafni Valþórssyni, Magneu Björk Valdimarsdóttur og Þorsteini Bachmann í helstu hlutverkum. Lars Emil Árnason leikstýrir og skrifar handrit.

Myndin var tekin upp á Seyðisfirði 2011. Framleiðandi er Kvikmyndafélag Íslands.

Theódór Júlíusson leikur ekkil sem færir börnum sínum óvæntar fréttir eftir utanlandsför í Ó blessuð vertu sumarsól.
Theódór Júlíusson leikur ekkil sem færir börnum sínum óvæntar fréttir eftir utanlandsför í Ó blessuð vertu sumarsól.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR