spot_img

Ný stikla úr „Vonarstræti“

Hera Hilmarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson í Vonarstræti eftir Baldvin Z.
Hera Hilmarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson í Vonarstræti eftir Baldvin Z.

Stikla kvikmyndarinnar Vonarstræti hefur nú litið dagsins ljós.

Myndin gerist í Reykjavík árið 2006 og segir frá þremur einstaklingum sem allir standa frammi fyrir stórum ákvörðunum í lífi sínu.

Sagan er innblásin af sönnum atburðum og með helstu hlutverk fara Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Hera Hilmarsdóttir og Þorsteinn Bachmann. Handrit er eftir Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson, en Ólafur Arnalds semur tónlist. Pétur Jónsson hjá Medialux samdi tónlist fyrir stikluna.

Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson framleiða fyrir Kisa/Kvikmyndafélag Íslands.

Vonarstræti verður frumsýnd 16. maí næstkomandi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR