RIFF haldin í haust

riff_1„Það er enginn bilbugur á okkur,“ hefur RÚV eftir Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF. „Við höldum áfram þessu mikilvæga starfi,“ segir hún um kvikmyndahátíðina sem haldin verður í ellefta skipti í ár, dagana 25. september til 5. október næstkomandi.

Í frétt RÚV um málið segir:

Þetta er fyrsta RIFF-hátíðin sem er haldin eftir að Reykjavíkurborg ákvað að styrkja hátíðina ekki áfram. Hrönn segir að 50 til 60 fyrirtæki og stofnanir komi til samstarfs um hátíðina. Aðspurð hvar hátíðin yrði haldin sagði Hrönn að það yrði tilkynnt síðar. Bæjarráð Kópavogs ræddi möguleika á því að fá RIFF í Kópavog, á fundi sínum í síðasta mánuði.

Undirbúningur að hátíðinni er kominn á fullt skrið og verður opnað fyrir umsóknir mynda í lok mánaðarins á vef hátíðarinnar. Áhersla verður lögð á Ítalíu á hátíðinni þetta árið Giorgio Gosetti velur myndir í flokkinn Vitranir eins og undanfarin ár og Dimitri Eipides aðstoðar við val á heimildarmyndum á hátíðina í ár. Hann var aðaldagskrárstjóri hátíðarinnar um sex ára skeið.

Sjá hér: RIFF haldin í ellefta sinn | RÚV.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR