Einföldun á umsóknarferli og stjórnsýslu til hagsbóta fyrir kvikmyndaiðnaðinn ásamt betri nýtingu opinbers fjár eru markmið samnings sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar undirrituðu í dag.
Endurgreiðslukerfi kvikmynda hefur verið starfrækt frá árinu 2001 á grundvelli laga nr. 43/1999. Fyrsta árið voru endurgreiddar alls 13 m.kr. en á síðasta ári námu endurgreiðslurnar 933 m.kr.
Héðan í frá mun Kvikmyndamiðstöð sjá um afgreiðslu erinda og almenna upplýsingagjöf um endurgreiðslukerfi kvikmynda. Jafnframt mun Kvikmyndamiðstöð fylgjast sérstaklega með þróun stuðningskerfa af þessu tagi í Evrópu.
Sjá nánar hér: Kvikmyndamiðstöð Íslands tekur að sér utanumhald á endurgreiðslukerfi kvikmynda | FRÉTTIR | Kvikmyndamiðstöð Íslands.