Edda Magnason og Sverrir Guðnason, Svíar af íslenskum uppruna, hlutu bæði Guldbaggen verðlaun Sænsku kvikmyndastofnunarinnar fyrir framkomu sína í kvikmyndinni Monica Z, en verðlaunaafhendingin fór fram á mánudagskvöld.
Edda hlaut verðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki en Sverrir sem besti leikari í aukahlutverki.
Edda (fædd 1984) hefur aðallega starfað sem söngkona og tónlistarmaður. Hlutverk Monicu Zetterlund er hennar fyrsta kvikmyndahlutverk.
Sverrir (fæddur 1978) hefur lengi starfað sem leikari og tók reglulega þátt í Wallander-seríunni svo dæmi séu nefnd.
Kvikmyndin fjallar um sænsku söng- og leikkonuna Monicu Zetterlund og söguna af því hvernig hún varð fræg jazzsöngkona í New York á sjöunda áratug síðustu aldar.