Stuttmyndin Prehistoric Cabaret hefur verið valin á Clermont Ferrand stuttmyndahátíðina. Myndin er eftir Bertrand Mandico, sem áður hefur gert stuttmyndir á Íslandi. Katrín Ólafsdóttir er framleiðandi, Arnar Þórisson tökumaður, leikarar eru Elina Löwensohn, Alexandra Kjuregej Argunova, Hannes Sigurðsson, Magnús Ólafsson, Flóki Molina, Enrico Fiocco og Katrín Ólafsdóttir.
Myndin er tekin í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og er lauslega byggð á sögu Jules Verne Ferðin að miðju jarðar.
Stikla myndarinnar er hér að neðan.