Heimildamyndin „Dauðans alvara“ sýnd í Bíó Paradís

Sýningar á heimildamyndinni Dauðans alvara eftir Áslaugu Baldursdóttur verða í Bíó Paradís fimmtudag til laugardags kl. 18. Þetta er heimildarmynd sem fjallar um útfararþjónustu og þá starfsemi sem í henni er fólgin.

Fylgst er með Rúnari Geirmundssyni og sonum hans að störfum hjá Útfararþjónustunni í Reykjavík í eina viku. Útfararstjórinn fer með áhorfendur í gegnum hefðbundinn vinnudag og í gegnum það ferli sem óumflýjanlega fylgir dauðanum. Dauðinn sem er áþreifanlegur og alltumlykjandi í myndinni er skoðaður á óhefðbundinn hátt. Nálægðin við efnið er mikil og verða áhorfendur nánast þátttakendur í ferlinu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR