Þetta ber hæst í dagskrá Bíó Paradísar um helgina:
Heiðurshelgi með Ulrich Seidl
Helgina 22. – 24 nóvember mun hinn margverðlaunaði austurríski leikstjóri Ulrich Seidl koma til Íslands þar sem hann mun opna síðustu myndina í Paradísar tríólógíunni Paradís: Von. Paradís: Ást og Paradís: Trú hafa gengið vel í bíóinu á haustmánuðum. Sjá nánar hér.
Kúbönsk kvikmyndavika
Kúbönsk kvikmyndavika verður í Bíó Paradís dagana 21. – 26. nóvember. Sýndar verða sex nýlegar kvikmyndir, allar með enskum texta. Kúbanir hafa framleitt töluvert af kvikmyndum síðan 1960, sérstaklega fyrstu árin eftir byltingu og síðustu tvo áratugi samfara endurmati á ýmsu sem aflaga hafði farið á Kúbu. Ein þeirra var kvikmynd Tomás Gutiérrez Aléas, Jarðaber og súkkulaði (1994) sem tilnefnd var til Óskarsverðlaunanna. Sjá nánar hér: Kúbönsk kvikmyndavika.
The Innocents á Svörtum sunnudegi
Hin magnaða hrollvekja Jack Clayton, The Innocents frá 1961, verður sýnd á sunnudagskvöld kl. 20. Myndin fjallar um barnfóstru sem sér um tvö ung börn, sem á í vandræðum með að bæla niður míðursýkislega trú sína á það að þau séu í raun andsetin af illum öndum dauðra manna.