Símon Birgisson fjallar um Málmhaus Ragnars Bragasonar á Reykvélinni og hvernig tónlist er notuð til að tjá innra líf persóna í myndinni. Símon segir m.a.:
„Ragnar Bragason notar svo tónlistina í stað orða til að lýsa þroska persónanna. Eitt af lágstemmdari en áhrifamestu atriðum myndarinnar er þegar Hera læðist niður í eldhús og heyrir óm úr stofunni, Karl faðir hennar er kominn með gítarinn í hendurnar og syngur með eiginkonu sinni og hlær. Það er tónlistin sem er græðir sárin. Hera nær sátt við bæjarbúa þegar hún treður upp með eigin bandi á þorrablótinu. Við getum gert okkur framhaldið í hugarlund, þungarokkstónar Heru hafa þegar vakið athygli málmhausa í Noregi, hennar bíður nýtt ferðalag, nýir áfangastaðir.“
Sjá nánar hér: Að tjá sig gegnum tónlist – Málmhaus eftir Ragnar Bragason | REYKVÉLIN.