Ragnar Bragason er staddur á Janela kvikmyndahátíðinni íRecife í Brasilíu með mynd sína Málmhaus og sendi frá sér þessar ljósmyndir frá sýningu myndarinnar í gærkvöldi sem Klapptré vill deila með lesendum sínum. Ragnar segir afar góða stemmningu hafa ríkt á sýningu gærkvöldsins, troðfullur salur hafi klappað og hrópað. Næsta sýning er annað kvöld.
Á Facebook síðu hátíðarinnar má sjá ummæli gesta og eru þau afar jákvæð, hér er úrdráttur úr nokkrum:
„Ég gerði mér ekki miklar væntingar eftir að hafa séð stikluna. Gott að í ljós kom að það voru óþarfa áhyggjur, ég naut myndarinnar í botn. Mæli eindregið með henni!“
„Snilld. Ein besta bíómynd sem ég hef séð.“
„Frábær leikarahópur sem virðir persónur sínar og sýnir okkur galla þeirra, ótta, eigingirni og óöryggi en líka hvernig þau takast á við vandamálin og yfirstíga þau. […] Lófaklappið eftir sýningu myndarinnar bergmálaði í eina og hálfa mínútu í troðfullum salnum. […] Við þurfum fleiri myndir af þessu tagi í kvikmyndahúsin!“