![James Woods í Videodrome eftir David Cronenberg.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/10/videodrome.jpg?resize=300%2C168&ssl=1)
Sýningar á klassík og költmyndum hefjast á ný í Bíó Paradís þann 20. október kl. 20 í nafni Svartra sunnudaga. Videodrome eftir David Cronenberg ríður á vaðið.
Í kynningu segir m.a.:
Myndin er svo sannaralega súrealísk útfærsla á hugmyndinni um hvernig áhrif fjölmiðlar hafa á líf fólks. Max Renn (James Woods) er eigandi lítillar sjónvarpsstöðvar. Einn daginn rekst hann fyrir tilviljun á þáttinn Videodrome. Þátturinn snýst um pyntingar og morð en einhverra hluta vegna verður Max alveg heillaður og reynir að fá leyfi fyrir því að sýna hann á sjónvarpsstöðinni sinni. Hann kemst að því að þátturinn er í raun tilraunarútsending leynilegrar stofnunar til að heilaþvo áhorfendur og að auki veldur útsendingin heilaæxli sem leiðir til þess að Max fer að sjá ofsjónir. Ekki líður á löngu þar til hann hættir að geta greint á milli raunveruleikans og ofsjónanna.
Sjá nánar hér: Svartir Sunnudagar: Videodrome.