„Come and See“ í Bæjarbíói

Úr Farðu og sjáðu eftir Elem Klimov.
Úr Farðu og sjáðu eftir Elem Klimov.

Kvikmyndasafnið sýnir í Bæjarbíói í kvöld og á laugardag rússneska meistaraverkið Farðu og sjáðu (Come and See / Idi i smotri) eftir Elem Klimov frá 1985. Þetta er talin vera ein áhrifamesta kvikmynd, sem gerð hefur verð um grimmdarverk herja fasista í Sovétríkjunum í síðari heimsstyrjöldinni. Myndin gerist á árinu 1943 í Hvíta-Rússlandi sem varð einna verst úti af völdum innrásarherja Þjóðverja. 628 hvítrússnesk sveitaþorp voru jöfnuð við jörðu og meira en 100 þúsund íbúar þeirra, konur, börn og gamalmenni brennd inni. Kvikmyndin hlaut margvíslega viðurkenningu og verðlaun á sínum tíma, ma. gullverðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Moskvu. Hún var sýnd á kvikmyndahátíð í Reykjavík haustið 1987 í Laugarásbíói.

Sýningar eru í kvöld kl. 20 og á laugardag kl. 16. Miðaverð er 500 krónur.

Sjá nánar hér: Kvikmyndasafn Íslands | Farðu og sjáðu – Idi i smotri.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR