Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir á Facebook síðu sinni að fólk í kvikmyndaiðnaðinum verði að gera sér grein fyrir því að ekki verði gengið lengra í styrkjum og ívilnunum til kvikmyndaiðnaðarins. Þar svarar hann gagnrýni Baltasars Kormáks sem sagði í Hollywood Reporter á dögunum að það væri nánast ógerlegt að byggja upp framtíð fyrir íslenska kvikmyndagerð ef haldið verði áfram að skera niður.
Þetta kemur fram í DV. Sjá nánar hér: Segir önnur mikilvægari samfélagsverkefni en að styrkja kvikmyndaiðnað – DV.