Tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð eru hafnar á ný og fara nú fram á Siglufirði. Áður höfðu tökur farið fram í Reykjavík og nágrenni en hlé var gert fyrir jól.
Á Vísi er haft eftir Sigurjóni Kjartanssyni, sem hefur yfirumsjón með verkinu, að þar sé varpað fram stórum pólitískum og samfélagslegum spurningum.
„Þetta er: Glæpur er framinn og hver sá seki? Það er grynnsta skýring á verkinu. En, það er ýmislegt fleira sem fléttast þarna inní.“
Baltasar Kormákur, Baldvin Z., Óskar Axelsson og Börkur Sigþórsson leikstýra seríunni sem verður í tíu klukkustundar löngum þáttum. Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson fara með helstu hlutverk. Rvk Studios framleiðir.
Sjá nánar hér: Vísir – Kvikmyndagerðarmenn leggja Siglufjörð undir sig.