HeimEfnisorðUna Lorenzen

Una Lorenzen

„Garn“ sýnd víða um heim

Heimildamyndin Garn/Yarn sem framleidd er af Compass Films hefur fengið góðar móttökur víða um heim á undanförnum misserum. Þannig var hún sýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum, Bretlandi og vel á þriðja tug annarra landa. Nú er hún til sýnis í yfir 20 kvikmyndahúsum í Japan.

„Garn“ í Bíó Paradís

Sýningar á heimildamyndinni Garn eftir Unu Lorenzen hefjast í Bíó Paradís á morgun, 9. september. Heather Millard og Þórður Jónsson framleiða.

„Garn“ Unu Lorenzen frumsýnd í New York í dag

Heimildamyndin Garn (Yarn) eftir Unu Lorenzen er frumsýnd í New York í dag. Myndin verður svo frumsýnd í Los Angeles um miðjan júlí og mun þaðan fara í almennar sýningar víða um Bandaríkin. Vefurinn GirlTalkHQ ræðir við Unu um myndina.

Bond/360 dreifir „Garni“ Unu Lorenzen í Bandaríkjunum, myndin sýnd á SXSW

Dreifingarfyrirtækið Bond/360 í New York hefur tryggt sér Ameríkurétt á heimildamynd Unu Lorenzen, Garni, sem sýnd verður á SXSW hátíðinni í Texas þann 12. mars.

„Ófærð“ fær 75 milljónir frá Creative Europe

Sjónvarpsþáttaröðin Ófærð fékk 75 milljónir króna frá Creative Europe, kvikmynda- og sjónvarpsáætlun ESB, sem á dögunum úthlutaði alls um 700 milljónum króna. Annað íslenskt verkefni, heimildamyndin Garn í stjórn Unu Lorenzen fékk sjö milljónir króna og því rann alls 12% úthlutunarinnar til íslenskra verkefna. Svo hátt hlutfall hefur aldrei áður farið til neins aðildarlands í einni úthlutun.
spot_imgspot_img

NÝJUSTU FÆRSLUR