Anorgasmia (All the Things We Do to Survive) í leikstjórn Jóns Gústafssonar hefur verið valin á 15 alþjóðlegar kvikmyndahátíðir og þegar hlotið fern verðlaun. Myndin fer í almennar sýningar á Íslandi á haustmánuðum.
Að minnsta kosti fimm kvikmyndir í fullri lengd og tíu þáttaraðir eru væntanlegar á árinu 2026. Að auki hafa fimm heimildamyndir boðað frumsýningar en þær verða þó mun fleiri.