Leifur hjá True North varar við hugmyndum um skerðingar á endurgreiðslu

Leifur B. Dagfinnsson framkvæmdastjóri True North varar við hugmyndum um skerðingar á endurgreiðslu sem hafa verið boðaðar og segir það verða á kostnað íslenskra hagsmuna og tækifæra.

Leifur skrifar á Vísi og segir meðal annars:

Hverju hefur kvikmyndaiðnaðurinn skilað fyrir Ísland?

Í úttekt á endurgreiðslukerfinu í kvikmyndagerð sem breska ráðgjafafyrirtækið Olsberg SPI vann fyrir stjórnvöld kom fram að fyrir hverja krónu sem fór í gegnum endurgreiðslukerfið á úttektartímabilinu (2019-2022) var ávinningurinn fyrir íslenskt efnahagslíf 6,8 krónur miðað við bein, óbein og afleidd áhrif. Þannig áætlaði Olsberg að endurgreiðsluhæf framleiðsluverkefni í kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð hafi varið á bilinu 9,7–28,9 milljörðum króna á Íslandi á hverju ári. 86% útgjaldanna hefðu ekki átt sér stað á Íslandi ef ekkert endurgreiðslukerfi væri fyrir hendi. Efnahagsleg umsvif kvikmyndaiðnaðarins á tímabili úttektarinnar voru 238 milljarðar króna og heildaratvinnutekjur hér á landi voru 48,9 milljarðar króna. Alls störfuðu 4.200 manns í beinum, óbeinum og afleiddum stöfum hérlendis við endurgreiðsluhæf kvikmyndaverkefni árið 2022, allt frá leikurum, förðunarfræðingum, búningahönnuðum og tæknifólki á öllum aldri, til þyrluflugmanna og bílstjóra.

True Detective: Dæmi um áhrif víða um land

Tökur á sjónvarpsþáttaröðinni True Detective er stærsta erlenda fjárfesting í menningu hér á landi enda nam hún 11,5 milljarði króna og vann framleiðslufyrirtækið Truenorth verkefnið alfarið hér á Íslandi fyrir sjónvarpsstöðina HBO Max. Tökur á þáttaröðinni fóru fram víða um landið með tilheyrandi umsvifum. Um það bil 65% af kostnaði verkefnisins féll til á höfuðborgarsvæðinu eða tæpur 7,5 milljarður. Um 15% af kostnaði verkefnisins féll til á Reykjanesi eða rúmur 1,7 milljaður króna og svipuð upphæð féll til á Norðurlandi eystra. Á Suðurlandi féll til 5% af kostnaði verkefnisins eða tæpar 600 m.kr.

Fjölbreytt þjónusta naut raunverulega góðs af

Við tökur á sjónvarpsþáttaröðinni var keypt þjónusta af 925 fyrirtækjum um allt land. Beinar launa- og verktakagreiðslur greiddar til einstaklinga sem unnu við verkefnið voru rúmur 4,6 milljarðar eða 40% af heildarkostnaði verkefnisins. Greiðslur til fyrirtækja sem þjónusta kvikmyndagerð á Íslandi, svo sem stúdió, tækja-, leikmyndaog aðstöðuleigur námu rúmum 3,4 milljörðum eða tæpum 30% af heildarkostnaði verkefnisins og greiðslur til ferðaþjónustufyrirtækja voru rúmar 2 milljarðar króna eða um 17,4 % af verkefninu.

Tækifæri og tengslanet

Til viðbótar skapa verkefni líkt og þetta einnig verðmæta þekkingu, tengslanet og tækifæri sem erfitt er að setja verðmiða á. Sýnilegasta dæmi er sennilega sá fjöldi íslenskra leikara sem hefur fengið hlutverk í stórum erlendum kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum. Þá hefur kvikmyndagerð orðið að heilsársatvinnugrein, sem er stór breyting til batnaðar. Þá eru ótalin þau jákvæðu áhrif og tækifæri sem verkefni sem þessi hafa á ímynd Íslands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.

Íslenskir hagsmunir í húfi

Nýverið voru kynntar tillögur starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri þar sem ein tillagan snéri að endurskoðun á endurgreiðslukerfinu með þeim orðum að „Endurgreiðslur vegna framleiðslu kvikmynda verða skv. áætlun 2,5 ma.kr. næstu árin. Þar sem ekki er hámark á greiðslunum geta þær orðið mun hærri, eins og 2024 þegar þær voru yfir 5 ma.kr. Tilefni er til að setja skýrari mörk á endurgreiðslur.“ Þá var einnig vitnað í mögulegar útfærslur á slíku með orðunum „Afnema skilyrði fyrir 35% endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar. Halda hlutfallinu í 25% eða jafnvel lækka það….“

Það er enginn vafi í mínum huga að samkeppnishæfni Íslands í kvikmyndagerð myndi skaðast verulega gengju hugmyndir sem þessar eftir. Möguleikar okkar á að ná í stór erlend verkefni, líkt og verðlaunaseríuna True Detective, yrðu að engu. Endurgreiðslur ríkisins myndu vissulega minnka, en það yrði á kostnað íslenskra hagsmuna og tækifæra.

Hvatning til stjórnvalda

Ég get upplýst hér að á vettvangi Truenorth hefur verið unnið að undirbúningi sjónvarpsþátta um Sturlungaöld, en fyrirtækið keypti réttinn af skáldsögum Einars Kárasonar með það fyrir augum að koma þessum íslenska menningararfi á sjónvarpsheimskortið í samvinnu við stóra erlenda aðila með tökum hér á landi. Lykilforsenda á þeirri vegferð er hins vegar að Ísland verði áfram samkeppnishæft.

Ég vil því hvetja stjórnvöld áfram til góðra verka, og til þess að standa með og styðja við kvikmyndagerð á Íslandi, hvort sem um ræðir Kvikmyndasjóð eða endurgreiðslukerfið í kvikmyndagerð, til dæmis með 35% fyrir öll verkefni. Það er til mikils að vinna, ekki bara fyrir íslenska menningu og tungu, heldur einnig þjóðarbúið.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR