Í samræmi við kvikmyndastefnu 2020-2030 hefur Kvikmyndamiðstöð Íslands það að markmiði að stuðla að sjálfbærni í framleiðslu íslenskra kvikmynda.
Fyrir liggur að framleiðendur standa frammi fyrir auknum kröfum í þessum efnum, til að mynda um mælanleg markmið, vottun, þjálfun á mannskap og breytta nálgun í tækjakosti og aðföngum.
KMÍ og SÍK efna til samtals um hvernig best er að stuðla að þessari umbreytingu í greininni hér á landi.
Málþingið fer fram í Bíó Paradís, þriðjudaginn 16. janúar, klukkan 15-17.
Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.
15:00 Inngangur
Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður KMÍ.
15:10 Erum við ekki græn nú þegar? Hvers vegna þarf að mæla og gera áætlanir?
Anna María Karlsdóttir, ráðgjafi.
15:30 Áskoranir og tækifæri
Fulltrúi stjórnar SÍK.
Umræður.
16:00 Kaffihlé
16:15 Green Producers Club
Mads Astrup Rönning kynnir starfsemi Green Producers Club. Green Producers Club hefur til þessa einkum starfað í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Nýlega hafa samtökin fengið fjármagn til að vinna að íslenskri og finnskri útgáfu af handbók og reiknivél til að áætla umhverfisáhrif einstakra verkefna.
Umræður.
17:00 Málþingi slitið