Þáttaröðin Heima er best í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur kemur í Sjónvarp Símans í haust. Hér má sjá stiklu verksins.
Morgunblaðið fjallaði um þáttaröðina á dögunum:
Tinna Hrafnsdóttir, leikkona og leikstjóri, leikstýrir Heima er best sem er glæný íslensk þáttaröð sem sýnd verður í Sjónvarpi Símans í haust. Hanna María Karlsdóttir, Pálmi Gestsson, Vignir Rafn Valþórsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir fara með aðalhlutverkin.
Þáttaröðin fjallar um þrjú ólík systkini sem upplifa mikla umbótatíma þegar höfuð ættarinnar fellur frá. Rótgrónu fjölskyldufyrirtæki og sumarhúsi, sem reist var frá grunni, þarf að skipta upp og finna farveg út frá nýjum viðmiðum og gildum. Það sem átti að sameina sundrar. Vandamálin verða óyfirstíganleg þegar systkinin fara að deila sín á milli um arf og öllu því tengdu.
Tinna Hrafnsdóttir skrifar handritið ásamt Ottó Geir Borg og Tyrfingi Tyrfingssyni.
„Hugmyndin að seríunni kviknaði fyrir um sex árum síðan þegar ég heyrði setninguna „þú þekkir ekki manneskju fyrr en þú hefur skipt með henni arfi“sem ég veit að margir tengja við. Sögur sem spegla það sem við þekkjum og varpa ljósi á aðstæður sem geta afhjúpað hver við raunverulega erum og af hverju, hafa alltaf heillað mig svo úr varð þessi fjölskyldusaga sem má segja að spretti beint upp úr íslenskum veruleika,“ segir Tinna Hrafnsdóttir.
„Það er alltaf mikil eftirvænting þegar við fáum nýjar leiknar íslenskar þáttaraðir inn á borð til okkar. Heima er best er bæði vönduð og spennandi þáttaröð sem við bindum miklar vonir við en viðskiptavinir okkar eru alltaf þakklátir fyrir íslenska kvikmynda- þáttagerð. Þetta er fjölskyldusaga um meðvirkni, leyndarmál, græðgi og ást sem margir Íslendingar tengja við,“ segir Birkir Ágústsson dagskrárstjóri innlendrar dagskrár Símans en þættirnir verða sýndir í nóvember.