Stór opnunarhelgi á KULDA

Kuldi eftir Erling Óttar Thoroddsen var frumsýnd um helgina og hlaut góða aðsókn.

Kulda sáu 5,086 gestir frumsýningarhelgina, en alls 5,936 með forsýningu. Myndin er í efsta sæti tekjulista FRÍSK. Aðsóknin er á pari við Napóleonsskjölin sem sýnd var fyrr á árinu og fékk alls um 30 þúsund gesti.

Aðsókn á íslenskar myndir 28. ágúst – 3. september 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
Kuldi 5,086 (helgin) 5,936 (með forsýningu)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR