Starfshópar skipaðir um gjaldtöku af erlendum streymisveitum og auglýsingar á RÚV

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað tvo starfshópa um annarsvegar gjaldtöku á erlendar streymisveitur og hinsvegar um auglýsingafyrirkomulag RÚV.

Þetta kemur fram í tveimur tilkynningum frá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu:

Starfshóp um gjaldtöku á erlendar streymisveitur er ætlað að skoða gjaldtöku á fjölmiðlaveitur sem miðla myndefni eftir pöntun, sem oft er talað um sem streymisveitur, og hinna svokölluðu erlendu tæknirisa. Innlendir fjölmiðlar hafa kallað eftir því að tekið verði til skoðunar samkeppnisumhverfi innlendra og erlendra fjölmiðlaveitna og þá sérstaklega með tilliti til skattaumhverfis þessara aðila. Hópinn skipa María Rún Bjarnadóttir (formaður), Heiðdís Lilja Magnúsdóttir fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytis og Vilmar Freyr Sævarsson, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytis. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Starfshóp um málefni Ríkisútvarpsins er ætlað að skoða mögulegar leiðir og tillögur til að breyta eðli og umfangi auglýsingadeildar RÚV til að minnka umsvif ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði, og hins vegar skoða möguleika á að létta lífeyrisskuldbindingum RÚV við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR). Hópinn skipa Karl Garðarsson (formaður), Steindór Dan Jensen fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytis og Óttar Guðjónsson fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytis. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum eigi síðar en 15. nóvember næstkomandi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR