Ingvar E. Sigurðsson, Elliot Crosset Hove og Maria von Hausswolff hlutu í gærkvöld Bodil-verðlaunin, sem samtök danskra gagnrýnenda hafa veitt árlega í áratugi, fyrir verk sín í kvikmyndinni Volaða land eftir Hlyn Pálmason.
Ingvar fékk Bodil sem leikari ársins í aukahlutverki, meðan Elliot Crosset Hove var valin leikari ársins. Maria von Hausswolff hlaut Bodil fyrir kvikmyndatöku ársins, en þetta er í þriðja skipti sem hún vinnur á síðustu 6 árum. Hún hlaut einnig verðlaunin fyrir fyrstu mynd Hlyns Vetrarbræður. Von Hausswolff á nú metið fyrir flest Bodil verðlaun í sínum flokki.
Volaða land er þriðja mynd Hlyns í fullri lengd og hefur þegar sópað að sér verðlaunum eftir að hún var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí. Hún hlaut Edduverðlaun fyrir leikstjórn og kvikmyndatöku Mariu von Hausswolff nú í mars. Volaða land var tilnefnd fyrir hönd Danmerkur til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2022 en verðlaunin hlaut íslenska kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar.