Abbababb! hefur skriðið yfir tólf þúsund gesta markið og Sumarljós hefur nú fengið yfir fjögur þúsund gesti. Báðar eru á lokametrunum í bíóhúsunum, sem og hinar íslensku myndirnar.
Svar við bréfi Helgu sáu 204 gestir í vikunni, en heildarfjöldi nemur nú 9,836 gestum.
Sumarljós og svo kemur nóttin fékk 117 gesti í vikunni. Heildaraðsókn nemur alls 4,008 gestum eftir sjöundu helgi. Myndin er í 13. sæti.
Abbababb! sáu 98 manns í vikunni, en myndin hefur nú alls fengið 12,024 gesti eftir 11. helgi.
Band sáu 44 gestir í vikunni. Heildaraðsókn nemur 493 gestum eftir fjórðu helgi.
Aðsókn á íslenskar myndir 21.-27. nóv. 2022
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
13 | Svar við bréfi Helgu | 204 (57) | 9,836 (9,632) |
7 | Sumarljós og svo kemur nóttin | 117 (291) | 4,008 (3,891) |
11 | Abbababb! | 98 (144) | 12,024 (11,926) |
4 | Band | 44 (53) | 493 (449) |
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)