30 ára afmæli Kvikmyndaskóla Íslands fagnað

Kvik­mynda­skóli Íslands fagnaði 30 ára af­mæli sínu síðastliðinn föstudag í hús­næði skól­ans á Suður­lands­braut.

Fjallað er um afmælið á mbl.is:

Rektor skól­ans, Börk­ur Gunn­ars­son, seg­ir að af­mæl­is­boðið hafi gengið vel og að gam­an hafi verið að Guðni Th. Jó­hann­es­son for­seti hafi mætt þar sem hann hafi svo góða nær­veru.

„Hann hélt öfl­uga ræðu þar sem hann hvatti okk­ur áfram og skoðaði síðan skól­ann og mætti á gjörn­inga­sýn­ingu hjá nem­end­um. Síðan skar hann auðvitað fyrstu sneiðina af kök­unni,“ seg­ir Börk­ur og bæt­ir við að gam­an hafi verið að sjá gamla nem­end­ur og kenn­ara mæta til að styrkja tengsl­in við sinn gamla skóla.

Fyrstu nám­skeiðin und­ir nafni Kvik­mynda­skóla Íslands voru hald­in haustið 1992 að Vatns­stíg 10. Nem­end­ur voru 23 og kenn­ar­ar og fyr­ir­les­ar­ar 17. Nám­skeiðin stóðu yfir í 3 mánuði og lauk með fram­leiðslu tveggja leik­inna stutt­mynda.

Haustið 2003 veitti Tóm­as Ingi Olrich, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, skól­an­um svo form­lega viður­kenn­ingu ráðuneyt­is­ins á tveggja ára náms­braut í kvik­mynda­gerð á fram­halds­skóla­stigi. Frá ár­inu 2004 hef­ur skól­inn út­skrifað um 600 nem­end­ur.

HEIMILDMbl.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR