Kvikmyndamiðstöð Íslands undirbýr opnun streymisveitu til að bæta aðgengi að íslenskum kvikmyndaarfi og hefur kallað eftir tillögum að nafni streymisveitunnar.
Segir á vef KMÍ:
Markmið veitunnar er að bjóða almenningi heima og erlendis upp á fjölbreytt úrval íslenskra kvikmyndaverka – bíómyndir, heimildarmyndir og stuttmyndir.
Streymisveitan er hugsuð sem þjónusta þar sem hægt verður að nálgast myndir sem yfirleitt eru ekki fáanlegar annars staðar. Greitt er fyrir áhorf á hverri mynd og í flestum tilvikum verður um eldri verk að ræða. Greiðslur renna til rétthafa, að frádregnum útlögðum kostnaði.
Streymisveitan verður tengd „veituleit“ á Kvikmyndavefnum , þar sem finna má upplýsingar um hvar hægt er að nálgast íslensk kvikmyndaverk, innanlands og erlendis. Þannig verður hægt að finna þær myndir sem ekki eru á streymisveitunni á hverjum tíma.
Nú leitum við til ykkar varðandi hugmyndir að nafni streymisveitunnar. Það þarf að vera stutt og þjált og helst þannig að það gangi á bæði íslensku og ensku.
Dómnefnd velur vinningstillöguna.
Höfundur vinningstillögunnar fær árskort í Bíó Paradís fyrir tvo.