[Stikla] Þáttaröðin BRÚÐKAUPIÐ MITT kemur í Sjónvarp Símans um páskana

Þáttaröðin Brúðkaupið mitt kemur í heild sinni í Sjónvarp Símans um páskana (13. apríl). Þetta er framhald þáttanna Jarðarförin mín, sem sýndir voru fyrir tveimur árum.

Haldið er áfram að fylgjast með Benedikt og hans litríku fjölskyldu, nú 18 mánuðum seinna. Benedikt gengur vel að jafna sig á aðgerðinni lífshættulegu og stefnir á að giftast æskuástinni sinni, séra Ólöfu.

Þegar gamla parið ætlar að segja allri fjölskyldunni góðu fréttirnar stelur Sígríður, fyrrverandi kona Benedikts, þrumunni. Sigríður tilkynnir að hún ætli að gifast Luis, argentíska ástmanni sínum. Þau eru með sömu dagsetningu í huga og Benedikt og Ólöf höfðu ákveðið að ganga í það heilaga.

Til að bæta gráu ofan á svart byrjar heilaæxlið aftur að láta á sér kræla og tími Benedikts er að renna út. Hann fær sig samt ekki til að segja neinum slæmu fréttirnar en stingur upp á því að sameina brúðkaupin, svo hann nái að minnsta kosti að giftast áður en hann deyr.

Leikstjóri er Kristófer Dignus en hann leikstýrði einnig Jarðarförinni minni. Laddi fer sem fyrr með hlutverk Benedikts, Ragnheiður K. Steindórsdóttir fer með hlutverk séra Ólafar, Ævar Þór Benediktsson og Birna Rún Eiríksdóttir fara með hlutverk unga parsins og Harpa Arnardóttir og Mario Glodek fara með hlutverk Sigríðar og Luis. Ungu stúlkurnar Sísí og Jasmín eru leiknar af Birtu Hall og Björk Friðriksdóttur. Glassriver framleiðir þættina fyrir Símann.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR