[Stikla] ÚT ÚR MYRKRINU, frumsýnd 20. apríl

Heimildamyndin Út úr myrkrinu eftir Helga Felixson og Titti Johnson verður frumsýnd í Bíó Paradís 20. apríl. Myndin miðlar reynslu aðstandenda sem hafa misst ástvin sem tekið hefur eigið líf og hvernig þeir hafa komist út úr myrkri og þöggun.

Segir í fréttatilkynningu:

Þagnarhjúpur og skömm hefur umlukið sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í gegnum aldirnar. Það skýrist eflaust af þeirri staðreynd að litið var á sjálfsvíg sem glæp, samanber tungutakið þar sem sumir tala um að „fremja sjálfsmorð“ en sögnin að fremja vísar í glæpsamlegt athæfi einsog það sama á við orðið morð.

Fyrr á öldum var hægt að gera eigur þeirra sem tóku eigið líf upptækar og greftrun þeirra í kirkjugörðum var bönnuð og Ísland var þar engin undantekning.

Frá því að gerð þessarar myndar hófst árið 2017 hafa að minnsta kosti 211 einstaklingar fallið fyrir eigin hendi á Íslandi. Talið er að 500 til 600 sjálfsvígstilraunir séu gerðar á Íslandi árlega og að á milli 30 til 50 manns deyja á ári vegna sjálfsvígs. Hvað er að, hvað veldur? Það er greinilega eitthvað verulega mikiðað í samfélagi sem sættir sig við þessa staðreynd.

Myndinni er ætlað að hvetja til opinnar umræðu um efni sem hingað til hefur verið umlukið dulúð og þrúgandi þögn.

Helgi Felixson og Titti Johnson eiga langan feril að baki í kvikmyndagerð og hafa áður gert myndir eins og Guð blessi Ísland, Vive la France og Undir stjörnuhimni sem allar hafa verið sýndar víða um heim, hlotið mikla athygli og verið sýndar á sjónvarpsstöðvum og á fjölda kvikmyndahátíða.

Leikstjórn, handrit og klipping var í höndum Helga Felixsonar og Titti Johnson. Þau eru jafnframt framleiðendur fyrir hönd Iris Film. Jacob Felixson sá um hljóðvinnslu og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttur gerði tónlist.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR