Kvikmyndaskóli Íslands hefur samstarf við Julliard listaháskólann í New York

Kvikmyndaskóli Íslands hóf nú á dögunum samstarf við hinn virta bandaríska listaháskóla Julliard í New York. Samstarfið fer þannig fram að Kvikmyndaskóli Íslands mun árlega bjóða útskriftarnemum að senda myndir til tónskáldadeildar Julliard sem mun tengja sína nemendur við leikstjóra frá Kvikmyndaskólanum.

Á næstu árum munu því útskriftarnemar Kvikmyndaskóla Íslands vera í samstarfi við efnilegustu tónskáld Julliard skólans í New York.

Í fréttatilkynningu frá Kvikmyndaskóla Íslands kemur fram að Julliard sé meðal þeirra fremstu í heimi á sviði leiklistar- og tónlistarkennslu en úr skólanum hafa útskrifast leikarar eins og Robin Williams, Jessica Chastain, Adam Driver, Laura Linney og goðsagnir í tónlistinni eins og Miles Davis, Nina Simone, Chick Corea og fleiri. Á þeim tæplega 120 árum sem skólinn hefur starfað hefur hann fest sig í sessi sem einn sá mikilvægasti í bandarískum kvikmynda- leikhús- og tónlistarheimi.

Friðrik Þór Friðriksson rektor Kvikmyndaskóla Íslands segir það einstaklega ánægjulegt að virtur skóli eins og Julliard hafi haft samband við Kvikmyndaskólann að fyrra bragði og sé það staðfesting á gæðum námsins í skólanum og hlakkar mikið til að sjá afrakstur samstarfsins.

Kvikmyndaskóli Íslands fagnar 30 ára afmæli sínu í ár. Við skólann hafa ýmist kennt eða numið flestir þekktustu kvikmyndagerðarmenn landsins. Árið 2012 var skólinn tekinn inn í Cilect sem eru alþjóðasamtök kvikmyndaskóla.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR