Skjaldborg opnar fyrir umsóknir

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda snýr aftur heim á Patreksfjörð og verður haldin í fimmtánda sinn um hvítasunnuhelgina 3.-6. júní. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir verk til frumsýningar og verk í vinnslu til kynningar á hátíðinni.

Fyrri umsóknarfrestur (early bird) er 18. mars og seinni þann 19. apríl. Tilkynnt verður um myndaval 28. apríl.

Umsóknarform er aðgengilegt á vef Skjaldborgar.

Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir og hefur það að markmiði að styðja við íslenska heimildamyndagerð. Hægt er að sækja um í tveimur flokkum, frumsýning á heimildamynd eða verk í vinnslu.

Þær íslensku heimildamyndir sem frumsýndar eru á hátíðinni keppa um tvenn verðlaun; áhorfendaverðlaunin Einarinn, sem hafa verið veitt frá upphafi, og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann.

Gjaldgeng til frumsýninga 2022 eru verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

– Heimildamyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar á Íslandi áður en Skjaldborg 2022 er lokið

– Heimildamyndir sem teljast íslensk framleiðsla, eru eftir íslenska heimildamyndahöfunda og/eða fjalla um íslensk viðfangsefni

Nánari upplýsingar á www.filmfreeway.com/Skjaldborg

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR