Stuttmyndin HREIÐUR eftir Hlyn Pálmason valin á Berlinale

Stuttmyndin Hreiður eftir Hlyn Pálmason hefur verið valin í Berlinale Special hluta alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.

Hreiður er saga af systkinum sem byggja saman trjákofa. Við fylgjumst með lífi þeirra og ferli í heilt ár í gegnum hamingju og þjáningu, vetur og sumar, ljós og myrkur.

Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að myndinni og framleiðendur eru Anton Máni Svansson fyrir íslenska framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures og Katrin Pors, Eva Jakobsen og Mikkel Jersin fyrir danska framleiðslufyrirtækið Snowglobe.

Hreiður var sérvalin af Carlo Chatrian listrænum stjórnanda hátíðarinnar og verður heimsfrumsýnd á sérstakri sýningu ásamt stuttmyndinni Terminal Norte eftir Lucrecia Martel.

Rammi úr Hreiðri.

Fyrri verk Hlyns hafa verið heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðunum í Cannes, Locarno og Toronto, og unnið til fjölda verðlauna víðsvegar um heiminn. Stuttmyndin Sjö bátar hóf ferðalag sitt í Toronto 2014, kvikmyndin Vetrarbræður tók þátt í aðalkeppni Locarno 2017 og kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur keppti á Critics’ Week á Cannes 2019.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR