Leynilögga er áfram í fyrsta sæti eftir fimmtu helgi.
Leynilöggu sáu alls 2,519 gestir í vikunni. Heildaraðsókn eftir fimmtu sýningarhelgi nemur 37,717 gestum.
Fjölskyldumyndina Birtu sáu 759 í vikunni en alls hefur hún fengið 4,858 gesti eftir þriðju sýningahelgi.
Dýrið sáu 35 í vikunni sem leið en alls hefur myndin fengið 6,561 gesti eftir níundu sýningarhelgi.
26 sáu pólsk-íslensku myndina Wolka í vikunni, en myndin hefur alls fengið 1,980 gesti eftir sjöttu helgi.
Aðsókn á íslenskar myndir 15.-21. nóv. 2021
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
5 | Leynilögga | 2,519 (4,013) | 37,717 (35,198) |
3 | Birta | 759 (1,661) | 4,858 (4,099) |
9 | Dýrið | 35 (134) | 6,561 (6,526) |
6 | Wolka | 26 (137) | 1,980 (1,954) |