LEYNILÖGGA með um 25 þúsund gesti eftir aðra helgi

Leynilögga eftir Hannes Þór Halldórsson er áfram í fyrsta sætinu og aðsókn hefur verið afar góð.

Leynilöggu sáu alls 11,176 gestir í vikunni. Heildaraðsókn eftir aðra sýningarhelgi nemur 24,621 gestum.

Dýrið sáu 531 í vikunni sem leið en alls hefur myndin fengið 6,133 gesti eftir sjöttu sýningarhelgi. Í Bandaríkjunum er myndin nú í 17. sæti með 2,676,410 dollara í tekjur eftir fjórðu sýningarhelgi.

139 sáu pólsk-íslensku myndina Wolka í vikunni, en myndin hefur alls fengið 1,752 gesti eftir þriðju helgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 25.-31. okt. 2021

VIKURMYNDAÐSÓKN (SÍÐAST)ALLS (SÍÐAST)
2Leynilögga 11,176 (8,503)24,621 (13,445)
6Dýrið531 (951)6,133 (5,602)
3Wolka139 (332)1,752 (1,613)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR