Útskriftarmynd Ninnu Pálmadóttur úr NYU Tisch School of the Arts, stuttmyndin Allir hundar deyja, hefur verið valin til þátttöku á Future Frames: Generation NEXT of European Cinema á Karlovy Vary hátíðinni sem fer fram dagana 22. – 26. ágúst í Tékklandi.
Future Frames, sem haldið er af European Film Promotion (EFP), er vettvangur til að kynna nýjar kvikmyndir frá ungum og efnilegum leikstjórum sem eru nýútskrifaðir úr kvikmyndaskólum í Evrópu. Alls eru 10 leikstjórar valdir til þátttöku. Karlovy Vary kvikmyndahátíðin er með elstu kvikmyndahátíðum í heimi og er hún ein sú stærsta sinnar tegundar í Mið- og Austur- Evrópu.