Meirihluti Íslendinga hefur horft á, eða byrjað að horfa á KÖTLU

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Prósents, sem framkvæmd var dagana 24. júní til 30 júní, hafa 36% Íslendinga horft á alla þættina af Kötlu á Netflix og 20% byrjað að horfa á þá.

Um 29% telja að þau muni horfa á þættina og aðeins 15% ætla líklega ekki að horfa á þá. Konur eru marktækt líklegri til að hafa horft á þættina en karlar, en 41% kvenna höfðu klárað alla þættina en aðeins 31% karla


Meirihluti svarenda telja þættina vera góða, en á skalanum 1-5 gáfu íslendingar þáttunum 4 í einkunn. Af þeim sem höfðu horft á þættina, þá töldu 78% þættina vera góða, 15% töldu þá vera hvorki góða né slæma og 7% töldu þá vera slæma. Lítill munur var á einkunnargjöf á milli hópa, en konur voru aðeins ánægðari en karlar og fólk á landsbyggðinni töldu þættina vera betri en fólk á höfuðborgarsvæðinu.

Á vefsíðunni FlixPa­trol má sjá vinsældir þáttaraðarinnar eftir löndum. Þættirnir eru einna vin­sælastir í Noregi, Sví­þjóð, Dan­mörku, Pól­landi, Finn­landi og Króatíu.

HEIMILDProsent.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR