Andlát: Árni Ólafur Ásgeirsson 1972-2021

Árni Ólafur Ásgeirsson kvikmyndaleikstjóri er látinn, 49 ára að aldri, eftir alvarleg veikindi.

Árni Óli, eins og hann var oftast kallaður, var fæddur í Reykjavík 1972. Hann útskrifaðist í kvikmyndaleikstjórn frá hinum virta kvikmyndaskóla í Lodz í Póllandi 2001.

Iben Hjelje í Anna’s Dag | Mynd: Cosmo Film, 2003

Stuttmynd hans, Anna’s dag (2003), með dönsku leikkonunni Iben Hjelje (Klovn/High Fidelity) í aðalhlutverki, vakti athygli á hátíðum víða og var meðal annars verðlaunuð á Clermont-Ferrand hátíðinni. Áður hafði hann skrifað handrit kvikmyndarinnar Maður eins og ég (2002) ásamt Róbert Douglas.

Margrét Vilhjálmsdóttir og Hilmar Jónsson í Blóðböndum | Mynd Pegasus, 2006.

Árni Óli frumsýndi fyrstu bíómynd sína, Blóðbönd, árið 2006. Þetta er fjölskyldudrama um augnlækni sem á von á sínu öðru barni með konu sinni þegar hann uppgötvar að hann er ekki líffræðilegur faðir elsta barns síns. Myndin hlaut fimm tilnefningar til Edduverðlauna og var einnig tilnefnd til Amanda, norrænu kvikmyndaverðlaunanna. Hún var jafnframt sýnd í Discovery hluta Toronto hátíðarinnar.

Ingvar E. Sigurðsson í Brim | Mynd: Zik Zak, 2010.

Næsta bíómynd Árna var Brim (2010) sem gerð var í samvinnu við leikhópinn Vesturport, saga um sundurleita togaraáhöfn sem mætir örlögum sínum í sjóferð sem tekur óvænta stefnu. Myndin var tilnefnd til 11 Edduverðlauna og hlaut sex Eddur, þar á meðal sem kvikmynd ársins. Hún var einnig tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og sýnd á fjölda hátíða víða um heim.

Úr Lói – þú flýgur aldrei einn | Mynd: GunHil, 2018.

Árni Óli var leikstjóri teiknimyndarinnar Lói – þú flýgur aldrei einn (2018) sem segir af lóu unga sem er ófleygur þegar haustið kemur og farfuglarnir fljúga suður á bóginn. Hann þarf því að kljást við miklar áskoranir til að lifa af harðan veturinn og eiga möguleika á að sameinast aftur ástvinum sínum að vori. Þetta er ein dýrasta kvikmynd sem Íslendingar hafa gert og einnig sú kvikmynd íslensk sem líklegast hefur farið hvað víðast um heimsbyggðina og flestir hafa séð.

Olga Bołądź í Wolka | Mynd: Sagafilm, 2020.

Árni Óli hafði nýlokið vinnslu sinnar fjórðu kvikmyndar, Wolka, í Póllandi og á Íslandi. Hún er væntanleg síðar á þessu ári. Myndin segir af hinni 32 ára Önnu sem fær reynslulausn úr fangelsi í heimalandi sínu Póllandi þar sem hún hefur afplánað 15 ára dóm fyrir morð. Frelsinu fegin ákveður Anna að fórna öllu með því að brjóta skilorð sitt og ferðast til Íslands þar sem hún þarf að horfast í augu við fortíð sína.

Í vor stóð til að hann hæfi tökur á þáttaröð í Póllandi fyrir Netflix, eftir eigin handriti, Ottós Geirs Borg og fleirri.

Árni Óli starfaði einnig við gerð sjónvarpsauglýsinga á erlendum vettvangi og kenndi kvikmyndaleik við Listaháskóla Íslands.

Eftirlifandi eiginkona hans er Marta Luiza Macuga leikmyndahönnuður. Sonur þeirra er Iwo Egill Macuga Árnason.

Fjölskyldu Árna Óla eru færðar innilegar samúðarkveðjur.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR