JARÐARFÖRIN MÍN seld til ARTE

Þýsk-franska menningarsjónvarpsstöðin ARTE hefur tryggt sér sýningarréttinn á þáttaröðinni Jarðarförinni minni sem sýnd var í Sjónvarpi Símans í fyrra.

„Við erum himinlifandi yfir að vinna með hinni öflugu ARTE sem er metnaðarfull sjónvarpsstöð sem einbeitir sér að hágæða menningartengdu efni og hentar þetta seríunni fullkomlega,“ segir Jan Bennemann, framkvæmdastjóri hjá Dynamic Television sem sjá um erlenda dreifingu á seríunni. „Jarðarförin mín sló í gegn á Íslandi og við erum spennt að deila þessari frábæru seríu með áhorfendum um alla Evrópu.“

„ARTE er meðal stærstu sjónvarpsfyrirtækja í Frakklandi og Þýskalandi og er þekkt fyrir að leggja áherslu á gæðaefni og eitthvað sem hristir upp í fólki,“ segir Hörður Rúnarsson hjá Glassriver sem framleiddi Jarðarförina mína fyrir Sjónvarp Símans. „Það vita allir hvað ARTE stendur fyrir og við hjá Glassriver erum stolt af því að Jarðarförin mín verði hluti af þeirra dagskrá í Þýskalandi og Frakklandi. Við erum sannfærð um að bráðskemmtilegt þema seríunnar slái í gegn hjá áhorfendum í þessum löndum.“

Kristófer Dignus Pétursson leikstýrði þáttunum og skrifaði handrit ásamt Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur, Baldvini Z, Sóla Hólm, Jóni Gunnari Geirdal og Ragnari Eyþórssyni.

Jarðarförin mín er ljúfsár en alvörugefin þáttaröð með Þórhalli Sigurðssyni í aðalhlutverki. Öll þáttaröðin er aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium. Þættirnir fjalla um mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun. Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skildi. Nú eru tvær vikur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða. Hann ákveður því að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin jarðarför og vera sjálfur viðstaddur. Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR