Friðrik Þór fær heiðurslaun listamanna

Friðrik Þór Friðriksson fær heiðurslaun listamanna frá og með næsta ári, samkvæmt tillögu allsherjarnefndar Alþingis.

Auk Friðriks fer Jón Ásgeirsson tónskáld einnig á lista þeirra 25 sem hljóta heiðurslaun listamanna. Þeir koma í stað Ragnars Bjarnasonar söngvara og Jóhanns Hjálmarssonar ljóðskálds sem létust á árinu.

Heiðurslaunin námu á þessu ári 407.413 kr. á mánuði. Um verktakagreiðslur er að ræða. Þau miðast við starfslaun listamanna og eru greidd til æviloka, en lækka í 80% af upphæðinni við sjötugsaldur.

Tveir aðrir kvikmyndaleikstjórar eru fyrir á listanum, þau Þráinn Bertelsson og Kristín Jóhannesdóttir.

Þeir einir geta notið heiðurslauna sem hafa varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína. Þá má einnig veita þeim heiðurslaun ef störf þeirra að listum hefur skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi.

HEIMILDRÚV
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR